Sjóðfélagar EFÍA geta sótt um útgreiðslur ellilífeyris vegna aldurs eða örorkulífeyris vegna orkutaps. Jafnframt geta makar og/eða börn sótt um útgreiðslur maka- og/eða barnalífeyris vegna andláts sjóðfélaga. Nánari upplýsingar um útgreiðslureglur og greiðslutilhögun má finna hér að neðan.
Þú getur skráð þig inn á Mínar síður með rafrænum skilríkjum. Einnig hefur þú aðgang að Mínum síðum í gegnum Netbanka Arion banka undir flipanum „Lífeyrissparnaður“.
Á Mínum síðum getur þú:
Tekjuskattur er greiddur af öllum útgreiðslum. EFÍA sér um að standa skil á staðgreiðslu til ríkisins. Nánar á vefsíðu RSK.
Mælt er með að leita ráðgjafar hjá Tryggingastofnun vegna mögulegra áhrifa sem útgreiðslur lífeyrissparnaðar geta haft á greiðslur frá TR. Nánar á vefsíðu TR.
Útgreiðslur ellilífeyris hefjast almennt við 65 ára aldur og standa til æviloka. Heimilt er að flýta töku ellilífeyris til 60 ára aldurs og að sama skapi má fresta töku ellilífeyris til 80 ára aldurs. Flýting/frestun hefur áhrif til lækkunar/hækkunar á áætluðum ellilífeyrisgreiðslum skv. samþykktum sjóðsins.
Hægt er að gera samkomulag um að skipta ellilífeyrisréttindum með maka og þarf sú skipting að vera gagnkvæm og jöfn.
Sjóðfélögum bjóðast þrjár leiðir til skiptinga á greiðslum en þær eru eftirfarandi:
Nánari upplýsingar og umsóknar eyðublöð um skiptingu ellilífeyrisréttinda má finna inn á vefsvæði Landssamtaka lífeyrissjóða.
Börn sjóðfélaga eiga rétt á barnalífeyri úr sjóðnum til 20 ára aldurs við andlát eða starfsorkumissi sjóðfélaga að eftirfarandi skilyrðum uppfylltum:
Upphæð barnalífeyris er mismunandi eftir því hvort lífeyrinn er greiddur vegna örorku eða andláts sjóðfélaga.
Barnalífeyrir greiðist til framfæranda barns til 18 ára aldurs barnsins.
Nánari upplýsingar um barnalífeyri má finna í kaflanum „Barnalífeyrir“ í samþykktum sjóðsins.
Maki sjóðfélaga á rétt á ævilöngum makalífeyri úr sjóðnum hafi sjóðfélagi greitt síðast til sjóðsins og í a.m.k. 24 mánuði.
Upphæð makalífeyris annaðhvort 48% af óskiptum ellilífeyrisréttindum eða 64% af örorkulífeyrisréttindum sjóðfélaga við andlát. Miðað er við það hlutfall sem veitir hærri makalífeyri.
Réttur til makalífeyris fellur niður ef makinn gengur í hjónaband á ný, stofnar til sambúðar sem jafna má til hjúskapar, eða stofnar til staðfestrar samvistar, nema kveðið sé á um annað í samþykktum.
Nánari upplýsingar um makalífeyri má finna í kaflanum „Makalífeyrir“ í samþykktum sjóðsins.
Sjóðfélagi sem metinn er með 50% örorku eða meira á rétt á örorkulífeyri úr sjóðnum í samræmi við áunnin réttindi, nema kveðið sé á um annað í samþykktum.
Uppfylli sjóðfélagi eftirfarandi skilyrði á hann einnig rétt á framreikningi á þeim réttindum sem ætla mætti að hann hefði áunnið sér fram til 65 ára aldurs, nema kveðið sé á um annað í samþykktum.
Örorkulífeyrir er greiddur þar til sjóðfélagi hefur aftur öðlast vinnufærni og er endurmat á örorku í höndum trúnaðarlæknis. Ef orkutap er varanlegt er örorkulífeyrir greiddur fram að töku ellilífeyris. Örorkulífeyrir hefur ekki áhrif til skerðingar á ellilífeyrisréttindum.
Nánari upplýsingar um örorkulífeyri má finna í kaflanum „Örorkulífeyrir“ í samþykktum sjóðsins.
Erlendir ríkisborgarar utan EES og utan Bandaríkjanna geta sótt um að fá iðgjöld sín endurgreidd þegar þeir flytja frá Íslandi skv. 19. gr. laga nr. 129/1997, að því gefnu að það sé ekki bannað samkvæmt milliríkjasamningum sem Ísland er aðili að.
Non EEA and non USA citizens can apply for reimbursement of their pension premiums when they move away from Iceland according to article 19. of laws number 129/1997, provided that it is permitted by international agreements.
Erlendir ríkisborgarar innan EES og Bandaríkjanna geta ekki tekið út lífeyrissparnað sinn þegar þeir flytja frá Íslandi.
EEA and USA citizens cannot withdraw their pension savings when they move away from Iceland.
Nánari upplýsingar á www.tr.is. - For more information visit www.tr.is.
Við notum vafrakökur til að bæta upplifun þína á vefnum. Lestu um hvernig við notum vafrakökur og hvernig þú getur stjórnað þeim með því að smella á "Stillingar fótspora".